657

Árþúsund: 1. árþúsundið
Aldir:
Áratugir:
  • 631–640
  • 641–650
  • 651–660
  • 661–670
  • 671–680
Ár:
  • 654
  • 655
  • 656
  • 657
  • 658
  • 659
  • 660

657 (DCLVII í rómverskum tölum) var 57. ár 7. aldar sem hófst á sunnudegi samkvæmt júlíanska tímatalinu. Það hefur verið þekkt sem árið 657 frá því snemma á miðöldum þegar Anno Domini-tímatalið, hið Kristna tímatal, var tekið upp.

Atburðir

  • 30. júlí - Vitalíanus varð páfi.
  • Orrustan um Siffin: Múslimar, undir stjórn Ali ibn Abi-Talib, börðust gegn Muawiyah ibn Abu Sufyan nálægt Raqqa.
  • Hernám Vestur-Tyrkja: Gao Zong, keisari Tangveldisins, sendi herför gegn Vestur-Tyrkjum undir stjórn Su Dingfang og lagði Vesturtyrkíska kanatið undir sig.
  • Annað stríð Tikal og Calakmul: Yuknoom Ch'een 2. lagði borgina Tikal í Mið-Ameríku undir sig.
  • Hilda af Whitby stofnaði nunnuklaustur í Whitby á Englandi.

Fædd

  • Ansprand, Langbarðakonungur.

Dáin

  • 1. júní - Evgeníus 1. páfi.
  • 12. nóvember - Heilagur Livínus, írskur trúboði.
  • Ammar ibn Yasir, fylgismaður Múhameðs.
  • Childebert ættleiddi, konungur Ástrasíu.
  • Klóvis 2., konungur Nevstríu og Búrgundar.
  • Grimoald eldri, hallarbryti í Ástrasíu.