Joe Gomez
| Joe Gomez | ||
| Upplýsingar | ||
|---|---|---|
| Fullt nafn | Joseph David Gomez | |
| Fæðingardagur | 23. maí 1997 | |
| Fæðingarstaður | Catford, England | |
| Hæð | 1,88m | |
| Leikstaða | Miðvörður | |
| Núverandi lið | ||
| Núverandi lið | Liverpool | |
| Númer | 2 | |
| Meistaraflokksferill1 | ||
| Ár | Lið | Leikir (mörk) |
| 2014–2015 | Charlton Athletic | 21 (0) |
| 2015– | Liverpool | 108 (0) |
|
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk | ||
Joseph David Gomez (fæddur 23. maí 1997) er enskur knattspyrnumaður sem spilar sem varnarmaður með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Gomez spilar aðallega sem miðvörður en getur spilað bæði sem hægri og vinstri bakvörður[1][2]
Gomez hóf feril sinn hjá Charlton Athletic, komst í byrjunarliðið 17 ára að aldri og spilaði eitt heilt tímabil áður en hann gekk til liðs við Liverpool í júní árið 2015. Eftir að hafa komið sér fyrir sem fastamaður í byrjunarliðinu glímdi Gomez við meiðsli en lék í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 2019 þegar Liverpool vann keppnina. Hann spilaði í úrslitaleik heimsmeistarakeppni félagsliða árið 2019 með Liverpool sem vann keppnina í fyrsta sinn í sögu félagsins. Hann var einnig hluti af liðinu sem vann ensku úrvalsdeildina tímabilið 2019-2020 og var fyrsti titill Liverpool í 30 ár.
Tilvísanir
- ↑ „Joe Gomez“. Liverpool F.C. Sótt 6 apríl 2023.
- ↑ Caddick, Alex (7 júlí 2022). „Opinion: How Joe Gomez's New Deal Highlights Liverpool's Elite Mentality“. Transfer Room. Sótt 6 apríl 2023.