Steinsuga
| Steinsugur | ||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Sæsteinsuga frá Svíþjóð
| ||||||||||||
| Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
| Undirættir | ||||||||||||
|
Geotriinae |
Steinsuga (eða dvalfiskur) er kjálkalaus fiskur með tenntan hringlaga munn sem virkar líkt og sogskál, en á henni eru svonefndar sogflögur. Flestar steinsugur sjúga sig fastar við aðra fiska og nærast á blóði þeirra. Þær lifa á grunnsævi á flestum stöðum í tempraða beltinu. Einnig nefndur sæsteinsuga.
Steinsuga á Íslandi
Steinsugu hefur öðru hvoru orðið vart á Íslandi en þá talin vera flökkufiskur. Um haustið 2006 bar mikið á bitnum fiski í afla veiðimanna, sérstaklega á sjóbirtingsslóðum í Vestur-Skaftafellssýslu. Nú fara fram rannsóknir á vegum Veiðimálastofnunar á því hvort Steinsuga hrygni í íslenskum ám.
Tenglar
- Hrygnir Sæsteinssuga í íslenskum ám ?, af vef Veiðimálastofnunar, skoðað 25. nóvember 2007.
- Sár eftir sæsteinsugu greinast á sjóbirtingum í Kúðafljóti, af vef Veiðimálastofnunar, skoðað 25. nóvember 2007.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist steinsugum.