Vígslustig klerka

Vígslustig klerka á miðöldum voru sjö, sem skiptust í fjórar lægri vígslur og þrjár æðri vígslur.

Lægri vígslur voru:

  • Ostiarius (latínu: „dyravörður“) — Hlutverk: Dyravörður og hringjari í kirkju.
  • Lector (latínu: „lesari“) — Hlutverk: Lesari við tíðagjörð.
  • Exorcista (latínu: „særingamaður“) — Hlutverk: Aðstoðarmaður við skírn og fleiri athafnir.
  • Acoluthus (latínu: „stuðningsmaður“[1]), stundum ritað akólútus eða akólútur — Hlutverk: Ljósberi við messur.

Æðri vígslur voru:

  • Undirdjákni eða súbdjákn — Hlutverk: Aðstoðarmaður við messuflutning.
  • Djákni eða djákn — Hlutverk: Aðstoðarmaður við messuflutning.
  • Prestur — Hlutverk: Öll venjubundin þjónusta í söfnuði.

Heimild

  • Kristni á Íslandi I, Rvík 2000, bls. 220.

Neðanmálsgreinar

  1. Hið latneska orð hefur margar ritmyndir: acolytus, acolythus, acolitus eða acoluthus.